Blessuð blíðan

Ég á ekki orð yfir veðrið á Íslandi þessa dagana - Ég, kuldaskræfan, sat úti í dag á peysunni (úr ull þó) og naut blíðunnar. Þetta var bara eins og það gerist best á sumrin - þá er ég ekki að tala um sumarið 2006! Var í barnaafmæli og börnin voru nánast í stuttbuxum og hlýrabolum. Eina merkið um að sumarið væri á förum var hausthorið sem fór ekkert sérstaklega vel við sumarklæðnaðinn.
Á á á - er með kveikt á sjónvarpinu og þar er einn Gibb bræðra að syngja gamla slagarann úr Saturday Night Fever - Staying alive - og því miður er þetta ekki alveg að gera sig. Hann er greinilega frekar stressaður og svo er spurning hvort hann er ekki eitthvað veikur? Fötin hanga utan á honum og mér finnst eins og tennurnar passi ekki alveg upp í hann lengur. En hann á eftir að syngja annað lag á eftir og vonandi gengur það betur. Lagið var samt ekki slæmt af því fötin eru of stór heldur einfaldlega vegna þess að hann var falskur.

« Fyrri síða

Um bloggið

Með sjálfri mér

Höfundur

Gyða Dröfn Tryggvadóttir
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Nói
  • Ástvaldur afi og Gunnar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband